![]() |
Starfsfólk LaserSjónar tekur vel á móti ţér Sérfræðingar LaserSjónar, þeir Þórður Sverrisson og Eiríkur I. Þorgeirsson hafa gert sjón-lagsaðgerðir á rúmlega fimm þúsund manns og þar af leiðandi um tíu þúsund augum. LaserSjón er í dag ein af stærri Lasik aðgerðastöðvum á Norðurlöndunum og hafa læknar fyrirtækisins því skipað sér sess á meðal reyndari manna í röð kollega sinna á Norðurlöndum. Skođa |

Um okkur
LaserSjón ehf. sérhæfir sig í lasermeðferð á hornhimnu augans til að laga sjónlagsgalla. LaserSjón er frumkvöðull í sjónlagsaðgerðum á Íslandi og hefur á að skipa reyndustu sérfræðingum á sínu sviði hér á landi. Fyrirtækið er búið háþróuðum tækjabúnaði til sjónlagsaðgerða og meðferða. Tæki LaserSjónar eru af svonefndri fjórðu kynslóð lasiktækja.
Sérfræðingar LaserSjónar, þeir Þórður Sverrisson og Eiríkur I. Þorgeirsson hafa gert sjónlagsaðgerðir á tæplega 5 þúsund manns og þar af leiðandi um tíu þúsund augum. LaserSjón er í dag ein af stærri Lasik aðgerðastöðvum á Norðurlöndunum og hafa læknar fyrirtækisins því skipað sér sess á meðal reyndari manna í röð kollega sinna á Norðurlöndum.
Lasikaðgerð er algengasta sjónlagsaðgerð í heiminum í dag og eru gerðar milljónir aðgerða á ári hverju. Lasikaðgerð hentar þeim sem ekki vilja vera háðir gleraugum eða linsum í leik og starfi og þeim sem ekki geta notað linsur vegna óþæginda eða ofnæmis. Þá henta Lasikaðgerðir einstaklega vel einstaklingum í störfum og með áhugamál þar sem linsur eða gleraugu há verulega eða hindra árangur.
Í nýlegum samanburði á Laseraðgerðatækjum sem bandaríska heilbrigðis-og lyfjaeftirlitsstofnunin (FDA) stóð fyrir, reyndist sú tegund Bausch og Lomb tækja sem LaserSjón notar skila bestum árangri. Niðurstöðurnar sýna að 87,3% fengu fulla sjónskerpu, 12,4% fengu verulega bætta sjónskerpu, en aðeins 0,3% náðu ekki tilætluðum árangri
Stofnendur fyrirtækisins þeir Eiríkur og Þórður hafa samanlagt áratuga reynslu á sviði augnlækninga og eru auk þess reyndustu sérfræðingar á Íslandi í Lasikaðgerðum. Auk þeirra Eiríks og Þórðar starfa hjá LaserSjón , 3 hjúkrunarfræðingar og ritari í móttöku eða alls 6 manns. Fimm af lykilstarfsmönnum LaserSjónar hafa farið í aðgerð með frábærum árangri.
Bausch og Lomb tækin sem við notum eru, vegna hins gríðarlega góða árangurs sem náðst hefur með þeim, með útbreiddustu tækjum í heiminum. Í dag eru þau notuð af mjög mörgum virtum og stórum fyrirtækjum á þessu sviði um allan heim þar sem starfa þekktir og heimsfrægir augnlæknar á sviði sjónlagsaðgerða.
Það að LaserSjón hafi valið þessi tæki sem koma afar vel út úr könnunum staðfestir að við kappkostum að vera ætíð með það besta sem til er í heiminum á hverjum tíma til að fást við augun þín. Við fylgjumst einnig vel með allri þróun á þessu sviði og sérfræðingar okkar sækja ráðstefnur erlendis á hverju ári þar sem nýjasta tækni, tæki og aðferðir eru kynntar. Það er mat okkar að með þessu standi LaserSjón í fremstu röð fyrirtækja á sínu sviði í heiminum í dag.
Við vitum að það ræður úrslitum um þann árangur sem við náum að okkur takist sem best til í hverju einstöku tilviki. Þess vegna er hvert tilvik fyrir okkur einstakt þar sem sérfræðingar LaserSjónar gerast sérfræðingar í augunum þínum.




