Ferliđ
Ferlið hefst á því að þú hefur samband við okkur með því að hringja til okkar í síma 5682525, eða þú óskar eftir forskoðun með því að skrá þig hér á vefsíðu okkar.
Skođa



Öryggisatriđi
Augun þín eru eitt það mikilvægasta sem þú átt og öryggi við hvers kyns augnaðgerðir skiptir þig því gríðarlega miklu máli.
Skođa



Gjaldskrá

Skođa



Hér erum viđ

Skođa



Gjaldskrá

Forskoðun kr. 6000.-

PLANOSCAN LASIK og LASEK aðgerð kr. 285.000.- Færð augndropa með heim.

Notaður er staðlaður hugbúnaður sem gefur ágætis niðurstöðu. Eingöngu er miðað við mælingu augans eins og um gleraugnamælingu væri að ræða



Sérsniðin LASIK og LASEK Zyoptix Personalized aðgerð kr. 315.000.- Færð augndropa með heim.

Þetta er nýr hugbúnaður og við verðum að greiða sérstaklega í hvert sinn sem við notum hann. LaserSjón hagnast ekki á notkun hans, hann er einfaldlega mun betri. Aðgerðin er gerð með því að greina lithimnu augans sem er eins og fingraför okkar og laga síðan sérsnið af hverju auga sem greinir meira en gleraugnamæling gerir eða aðra ljósbrotsgalla (higher order aberrations).

Kostir aðgerðarinnar eru:

1. Engin hætta á að rugla augum eða einstaklingum

2. Betri rökkursjón.

3. Aðgerðin er 30% minni og tekur styttri tíma.

4. Afburðagott reikniforrit og dregur úr tíðni á þörf fínstillingar

Þetta er kallað Iris Guided Personalized Wavefront Treatment á ensku og er hin nútímalega aðferð í laseraðgerðum. Á þeim 9 árum sem við höfum starfað við laseraðgerðir er þetta forrit mestu framfarirnar sem orðið hafa í slíkum aðgerðum.